Back to...
PowerBurner's Testimonials
Anna Gunnlaugsdóttir
Ég hef prófað hina og þessa tíma til þess að koma mér í form á mettíma, það var ekki fyrr enn ég fór að mæta í Powerburn sem það tókst. Skemmtilegir og fjölbreyttir tímar aldrei sömu æfingarnar og alveg hrikalega áhrifaríkt. Í þessum tímum er tekið á öllum líkamanum, vöðvastyrkur minn ásamt þoli er búin að taka stakkaskiptum á 4 vikum.
Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Jófó
Ég ákvað að taka tvö PowerBurn námskeið til að auka hjá mér styrk og úthald áður en ég keppti um titilinn Sterkasta Kona Íslands 2009.
Þar sem ég var EKKI að reyna að grenna mig gerði ég allt sem ég gat til að vinna á móti námskeiðinu og át eins og hestur þennan tíma.
Samt sem áður - eftir þessar átta vikur hafði líkamsfituprósentan mín farið niður úr 25% í 20% og ég bætti á mig 5kílóum af vöðvamassa.
ÞETTA er það sem ég kalla árangur!!!
I decided to take two PowerBurn courses to gain strength and stamina before I competed in the Iceland's Strongest Woman competition 2009.
Since I was NOT trying to lose weight I did all I could to keep my weight up and spent most days eating alot.
Still - after eight weeks my bodyfat had dropped from 25% to 20% and I gained 5 kg of musclemass :)
THIS is what I call effective!!!
Jóhanna Eivinsdóttir - Sterkasta Kona Ísland 09
Gegnum tíðina hef eg tekið hnébeygjur þá daga sem eg styrki fæturnar ásamt öðrum æfingum í tækjum. Ákvað svo að prófa að taka þátt í powerburntíma þar sem reynt var sérstaklega á fæturnar. Tíminn var skemmtilegur, fjölbreyttur, mikið reyndi á þol og æfingarnar öðruvísi. Ég mætti í þrjá tíma á þriggja vikna tímabili. Eftir að hafa mætt powerburntímana bætti eg mig um 20 kg í hnébeygjunni. Ég mæli eindregið með þessum tímum fyrir þá sem vilja léttast og bæta þol og styrk.
Rakel Lilja Halldórsdóttir
Ég ákvað að prófa Powerburn hjá Gemmu eftir að ég kom heim frá USA í lok sumars þar sem ég hafði þyngst dálítið mikið þar og langaði að ná fljótum árangri því það var stutt í Model fitness mótið sem ég stefni á að taka þátt í í nóvember. Eftir fyrsta mánuðinn fór ég úr 17,68% líkamsfitu niður í 12,72% s.s. tæp 5% sem var miklu meira en ég bjóst sjálf við. Ég bætti á mig 1,5 kg í vöðvamassa og léttist um 2,25 kg .. Eftir 2 mánuði var ég komin niður í 11,66% líkamsfitu og hafði bætt á mig 3,2 kg í vöðvamassa. Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar og í svona hóp kemur keppnisskapið fram í manni og bætingarnar standa ekki á sér.. :) Ég mæli eindregið með því að allir sem eiga erfitt með að koma sér af stað og jafnframt þeir sem bara vilja breyta til og prófa e-h nýtt og skemmtilegt mæti í Power Burn.
Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir
Ylfa Rún Jörunsdóttir
Ég hef æft í mörg ár og hef þurft að skipta um tækni reglulega svo ég staðni ekki. Þ.a.l hef ég verið frekar leitandi í gegnum tíðina. Eftir að ég byrjaði í powerburn hef ég ekki þurft að skipta um æfingar, powerburn æfingarnar eru fjölhæfar og krefjandi á þann hátt að manni er ávallt haldið við efnið. Ég hef náð meiri árangri í powerburn tímunum mínu síðustu 6 vikur en á mörgum æfingarprógrömmum sem ég hef prufað. Þeir bæta ekki bara þolið heldur líka styrk og snerpu.